Persónuvernd
Síðast uppfært 25. nóvember 2026
BCVerk er viðbót við Business Central og app fyrir starfsmenn sem sinna útkeyrslu og verkbeiðnum. Hér kemur fram hvaða upplýsingar BCVerk og BCVerk-appið vinna með, til hvers og hvernig þær eru varðveittar.
Hver ber ábyrgð
Fyrirtækið sem notar BCVerk, vinnuveitandi starfsmannsins, er ábyrgðaraðili upplýsinganna. App2 ehf. rekur BCVerk og er vinnsluaðili fyrir hönd fyrirtækisins. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á hjalp@nav.is.
Upplýsingar um starfsmenn
- Nafn, símanúmer og netfang, sem fyrirtækið skráir í Business Central. Símanúmerið er notað til innskráningar og til að senda virkjunarkóða.
- Staðsetning, aðeins á meðan leið er í gangi. Hún er notuð til að reikna komutíma, sýna verkstjóra hvar leiðin er stödd og skrá komu og brottför á viðkomustað. Appið skráir staðsetningu líka þegar það er í bakgrunni eða skjárinn er læstur, svo komutímar haldist réttir allan daginn. Skráningin hættir þegar leið lýkur eða starfsmaðurinn skráir sig út.
- Skráningar í starfi: tímar, afhent magn, athugasemdir, myndir og staða verka.
- Upplýsingar um tækið, t.d. gerð og útgáfa stýrikerfis, til að tengja tækið við starfsmanninn og leysa villur.
Upplýsingar um viðtakendur
Til að afhenda og sinna verkum fær appið nafn viðtakanda, heimilisfang, símanúmer tengiliðar og leiðbeiningar frá fyrirtækinu. Á staðnum getur starfsmaður skráð nafn móttakanda, tekið myndir og fengið undirskrift. Þær upplýsingar fara til fyrirtækisins í Business Central sem staðfesting á afhendingu eða verki.
Myndavél, hljóðnemi og lífkenni
- Myndavél: til að taka myndir af afhendingu eða verki og skanna strikamerki. Aðeins myndir sem starfsmaður tekur eru sendar.
- Hljóðnemi: aðeins þegar starfsmaður velur að lesa inn athugasemd. Talgreining símans breytir tali í texta. BCVerk vistar ekki hljóðið.
- Andlit eða fingrafar: valkvætt, til að opna appið. Það er staðfest í símanum sjálfum og BCVerk fær engar lífkennaupplýsingar.
Hvar upplýsingarnar eru geymdar
Upplýsingarnar eru geymdar í Business Central hjá fyrirtækinu og á netþjónum BCVerk í gagnaverum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Samskipti milli apps, netþjóns og Business Central eru dulkóðuð. Á símanum geymir appið gögn dagsins svo það virki án netsambands, og þau eru send um leið og samband næst.
Hve lengi
Staðsetningarferill leiðar er geymdur í 30 daga. Staðsetning við komu og verklok fylgir verkinu sem staðfesting. Aðrar upplýsingar eru geymdar á meðan fyrirtækið notar BCVerk og eftir það samkvæmt samningi við fyrirtækið. Þegar starfsmaður er gerður óvirkur í BCVerk getur hann ekki lengur skráð sig inn.
Deiling
Upplýsingar eru ekki seldar eða notaðar í auglýsingaskyni. Þær eru aðeins afhentar þjónustuaðilum sem BCVerk notar til reksturs, svo sem hýsingu, kortaþjónustu og sendingu SMS og tölvupósts, og aðeins að því marki sem þarf.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar eru skráðar um þig, fá þær leiðréttar og í vissum tilvikum eytt. Snúðu þér fyrst til vinnuveitanda þíns, eða sendu okkur línu á hjalp@nav.is. Einnig má leita til Persónuverndar (personuvernd.is).