Útkeyrsla og verkbeiðnir, beint úr Business Central.
Starfsmenn fá verkin í appið og allt sem gerist á staðnum skilar sér beint í BC: magn, myndir, undirskrift og tími.

Allt sem fer út úr húsi
Útkeyrsla á seldum vörum og verkbeiðnirHvort sem það er vara á bretti eða viðgerð hjá viðskiptavini, þá byrjar það sem skjal í Business Central og endar sem verk í appinu.
Seldar vörur
Úr sölupöntun eða sölureikningi
„Setja í útkeyrslu“ sýnir heimilisfang, síma og tengilið til yfirferðar. Þegar það er samþykkt fer sendingin á leið.
Verkbeiðnir
Úr viðskiptamanni eða eign
Verkþættir, tími og efni fylgja verkinu. Þegar því er lokið er það bókað á sölureikning eða á verk í verkbókhaldi BC.
Stýrt úr Business Central
Leiðaskipulag, verkplan og skil til baka í BCVerkstjórinn vinnur í BC eins og áður. BCVerk birtist á forsíðunni hans, með tölum dagsins og öllu sem þarf að bregðast við.
- Skilar sér til baka sjálfkrafaStaða, afhent magn, ástæður frávika, myndir og undirskrift skrifast á færsluna í BC.
- Tímar og efni á reikningVerkbeiðni er bókuð á sölureikning eða á verk, og verkið reikningsfært eins og venjulega.
- Leiðir eftir vegumLeiðirnar eru reiknaðar eftir vegakerfinu með ferðatímum, og tímagluggar viðskiptavina eru virtir.
- Sett upp sem viðbót í BCEngin breyting á grunnkerfinu. Viðbótin notar sömu viðskiptamenn, vörur og forða.
Appið leiðir starfsmanninn í gegnum daginn
Leiðin, stoppið og afgreiðslan í símanumEinfalt app á íslensku og ensku, fyrir síma og spjaldtölvur. Starfsmaður skráir sig inn einu sinni og appið man hann eftir það.
-

Hefja leiðina
Leiðir og verk dagsins bíða í símanum, í réttri röð og með áætluðum komutíma.
-

Mæta á staðinn
Heimilisfang, tímagluggi, leiðbeiningar og vörur. Leiðsögn og símtal í einum smelli.
-

Afgreiða verkið
Afhent magn, myndir, athugasemd og undirskrift. Ef eitthvað vantar er ástæðan skráð.
Hvernig það virkar
Úr BC í símann og aftur til bakaVerkin eru stofnuð í Business Central, fara í símann og allt sem er skráð á staðnum skilar sér aftur í BC.
Business Central
BCVerk-viðbót: leiðaskipulag, verkplan og verkbeiðnir
BCVerk
Raðar leiðum og heldur appi og BC samstilltum
Appið
Gögn dagsins geymd í símanum, samstillt í bakgrunni
- Engu breytt í BC
- BCVerk er viðbót og notar sömu viðskiptamenn, vörur og forða.
- Virkar án netsambands
- Það sem er skráð vistast í símanum og sendist þegar samband næst.
- Lokað strax á starfsmann
- Starfsmaður sem hættir er gerður óvirkur í BC og kemst ekki lengur inn.
Spurt og svarað
Verkbókhald, útkeyrsla og uppsetning í BC- Tengist BCVerk verkbókhaldi í Business Central?
- Já. Verkbeiðni getur verið tengd verki og verkhluta í BC. Þegar henni er lokið eru tímar og efni bókuð á verkið og það reikningsfært eins og venjulega. Verkbeiðni sem er ekki á verki fer á sölureikning.
- Hvernig fer útkeyrsla úr Business Central í appið?
- Úr sölupöntun eða sölureikningi er valið „Setja í útkeyrslu“. Sendingin raðast á leið bílstjórans og birtist í appinu í réttri röð. Afhent magn, myndir og undirskrift skrifast til baka á færsluna í BC.
- Þarf að breyta einhverju í Business Central?
- Nei. BCVerk er sett upp sem viðbót og notar sömu viðskiptamenn, vörur, forða og verk og eru fyrir í BC.
- Hvað kostar BCVerk?
- 4.900 kr. á notanda á mánuði. Innifalið er viðbótin í BC, appið, leiðabestun og kort, hýsing, uppfærslur og afritun.
Eitt verð á hvern notanda
4.900 kr. á notanda á mánuði4.900 kr.
á notanda á mánuði
- BCVerk-viðbót í Business Central
- App fyrir síma og spjaldtölvur
- Útkeyrsla og verkbeiðnir
- Leiðabestun og kort
- Hýsing, uppfærslur og afritun
Sjáðu BCVerk í þínu Business Central
Við setjum BCVerk upp í prófunarumhverfi með ykkar gögnum og förum yfir það með ykkur.
Hafa samband